Sigga bloggari

Kolvetnafíkillinn tjáir sig!

17.3.05

Rugl dagar!

Ég er bara aðeins að segja hæ hérna.
Er ekkert búin að gleyma blogginu. Það er bara einhvernvegin allt í rugli hjá mér.
Matarræðið er búið að vera pínu kreisí annað hvort er ég sísvöng eða alveg lystarlaus þannig að þetta hafa verið skrítnir síðustu dagar. Svo lenti ég í því að þurfa að vinna tvöfalt í gær semsagt frá kl 15:45 til 09:00. Það var eitthvað rugl með eina sem átti að mæta á næturvaktina og það uppgvötaðist ekki fyrr en um miðnætti. Ég nennti ekki að standa í því að fara að hringja í fólk og draga það fram úr rúminu til að koma í vinnuna eftir miðnætti þannig að ég leysti þetta bara með því að vera bara áfram sjálf.
Þannig að matarræðið í gær var mjög skrítið ... át roastbeef samloku þarna um miðja nótt og svo kom ég við í bakaríi á leiðinni heim...fannst ég sko eiga það skilið. Svaf svo til kl 17 . Ég fékk burritos með hakki í kvöld og svo smá ostapopp.
Ég hef ekki þorað að reikna kaloríurnar fyrir síðustu daga. Það kemur bara í ljós á vigtinni hvernig ég er að standa mig.
Jæja farin að horfa á desparte housewifes, vonandi meira á morgun!

4 Comments:

Blogger lalala said...

Ég er líka að fara að glápa á Desperate Housewives :) er að bíða... alla vegana þá myndi ég mæla með því að reikna alltaf hitaeiningarnar... ég hef gert það þó að ég hafi tekið nammidaga... þá sér maður þetta svart á hvítu ;) þetta var ekkert smá vinnutörn skvísa... þú hlýtur að sofa mikið eftir þetta ;)

10:17 PM  
Anonymous Anonymous said...

úfff, rosa langur vinnudagur, vonandi fer matarlystin að stabilíserast. Gangi þér vel :)
Kveðja Lotta

11:02 PM  
Anonymous Anonymous said...

hehe hvað er leiðinlegra en að þurfa að kalla út fólk á vaktir, skil þig vel að hafa ekki nennt því :Þ vona að regla fari að komast á hlutina núna ,, nú verðurðu að spýta í lófana !! :)

7:12 PM  
Blogger Lilja said...

Ég hef einmitt gert þetta líka, bara verið áfram af því að ég vildi ekki vera að skikka fólk í vinnu. Svo var nú hringt í mig í kvöld og verið að reyna að fá mig til að taka auka næturvakt, nennti því bara ómögulega í þeta skiptið, þó ég sé ansi dugleg að taka aukanæturvaktir ef þær bjóðast.

Jájá, ekki hafa miklar áhyggjur af mataræðinu, það fer nú alltaf í svolítið rugl í svona vinnutörn ;)

1:56 AM  

Post a Comment

<< Home