Kverkaskítur
Ég get svo svarið það ég held að ég sé að verða lasin. Búin að vera hálf drusluleg síðan í gærkvöldi með svona eins og ofan í mér einvhernvegin og hósta soldið. Týpískt því ég á að vinna um helgina. Þetta er orðið doldið óþolandi sko ég var veik 2 helgar sem ég átti að vinna í röð í janúar. Liðið í vinnuni heldur örugglega að ég bara vilji ekki vinna um helgar :s
Annars fór ég á kynningarfund í dag á nýju kjarasamningunum og er bara þokkalega sátt við þá. Ég fæ 10 þúsund kr hækkun á grunnlaunin strax og svo á að breyta launakerfinu næsta vor þá verða lægstu laun í töflunni um það bil það sem ég er með núna þannig að ég vonast til að fá meiri hækkun þá. Enda kominn tími til að fá mannsæmandi laun svo maður þurfi ekki að skammast sín fyrir launin sín. Ég meina það ég get sko orðið Geðveikt fúl þegar ég heyri um fólk sem er með minni menntun en ég og vinnur með peninga og tölur og hefur helmingi hærri laun en ég sem er bókstaflega með lífið í lúkunum alla daga. Sanngjarnt? NEI!
Jæja nóg um það..verð bara pirruð að pæla í þessu.
Matseðill dagsins lítur nú ekki nógu vel út. Svosem alveg innan kaloríumarka enn allt of mikið af fitu og ekki nóg prótein. Enn svona eru bara sumir dagar.
kl 11: cherrios og fjörmjólk 300 kal
kl 15: 2 spelt rúgbrauðssneiðar með osti og spæjó 250 kal.
kl 19: 3 pylsur í brauði með tómat og steiktum 800 kal
kl 20: 1 low carb súkkulaði 250 kal
kl 23 5 jarðarber 10 kal
Samtals 1550 kal.
Ég er alls ekkert ánægð með pylsurnar sko enn hafði bara ekkert hugmyndaflug í eitthvað skárra. Ætlaði á Grænan kost enn ákvað að geyma það til morguns. Við vorum með gest í mat (þó ekki hinn eina sanna Gest sko) og eftir matinn fengu strákarnir Celebrations með kaffinu enn ég maulaði bara mitt low carb súkkulaði og var bara ánægð með það.
Ég ætlaði svo bara alls ekki að trúa því hvað það eru fáar kaloríur í Jarðarberjum...verð að vera duglegri að borða þau. Þau eru alveg ýkt góð. Nammi namm!
Jæja best að kíkja á einn bloggrúnt...hef alls ekki verið nógu dugleg að fylgjast með hinum átaksskvísunum upp á síðkastið.

5 Comments:
Ójú þau eru frábær... bæði góð, holl og hitaeiningasnauð :)
láttu þér nú batna :) og gangi þér vel að átakast. ahhh nýju kjarasamningarnir.. fór líka á þennan fund .. þyrfti eiginlega betri útskýringar á honum :Þ
kveðja , hlunka
Já, jarðaber eru alveg snilld ;) Líka nokkuð kolvetnasnauð og henta því einnig þeim sem eru á kolvetnasnauðu fæði.
Hvernig eru nú hjúkkulaunin orðin á Íslandi? Maður er alveg hættur að fylgjast með :S
Ég er bara pínu forvitin hver þú ert Hlunka. Við sátum semsagt í sama salnum, ég var þessi sem hóstaði..híhí.
Lilja: Núna eru grunnlaun Hjúkrunarfræðings með 5 ára starfsreynslu svona ca 200 þús. Fer eftir því hvar maður raðast í framganginum.
Vonandi fer það uppí 250 með nýju samningunum. Enn það á eftir að gera stofnanasamninga sem er eins og nýtt framgangskerfi.
Svo það eru spennandi tímar framundan...kannski fer maður að geta lifað af laununum sínum.
Já það má nú segja það. Kannski ég geti flutt heim eftir nokkur ár og fengið laun sem eru í lagi, hehe.
Post a Comment
<< Home