Ekki er vitið meira en Guð gaf.
Hvað haldið þið...þegar ég opnaði ísskápinn í morgun þá var bara engin fjörmjólk til. Ég gleymdi alveg að gá að því þegar ég skipulagði matseðil dagsins. Ég var ekki með bílinn og nennti sko ekki að labba út í búð á fastandi maga. Þannig að þessu var snarlega reddað með því að ég fékk mér bara afganginn af kjúllasalatinu síðan í gær í morgunmat. Veit ekki alveg hvernig það kemur út kaloríulega enn örugglega ekkert mikið fleiri en þessar 400 sem ég var búin að reikna með sem morgunmat.
Svo tók ég mig til og bakaði speltbollurnar mínar og vigtaði allt sem ég setti í þær til að geta reiknað út næringargildið. Það kom semsagt út að hver bolla inniheldur 230kkal.
Að öðru leiti var matseðillinn eins og planað var nema ég sleppti atkinsbarnum og fékk mér speltbollu í staðinn. Svo uppgvötaði ég það að ég borðaði helmingi minna af sósu með buffinu en ég gerði ráð fyrir og þar voru sko ansi margar kaloríur sparaðar.
Það hafa verið dálitlar umræður hérna í kommentunum um orkuþörf. Við hjónaleysin ræddum þetta yfir kvöldmatnum (maðurinn minn er matvælafræðingur og hefur töluvert spáð í næringarfræði). Við komumst að því að ég ætti að halda áfram að halda mig um eða undir 1800 kal. Ég gerði það í fyrra þegar ég fór í átak og náði af mér 10 kg á 12 vikum. Síðan fór ég að borða meira (reiknaði það nú svosem aldrei) og hélt mér samt nokkurnvegin sömu í þyngd í 6 mánuði.
Ég er að reyna að gera þetta þannig að ég lækki ekki grunnbrennsluna mína en léttist samt. Þetta er ansi mikill línudans en vonandi gengur þetta hjá mér.
Kannski er ég bara svo heppin að hafa þokkalega hraða brennslu enda aldrei nennt að fara í megrunarkúra sem geta eyðilagt hana sko. Þið vitið gulrótakúrinn og sítrónukúrinn og hvað þetta heitir nú allt saman. Jæja geymum frekari yfirlýsingar þangað til við sjáum hvernig gengur.
Þá er það matseðill morgundagsins:
Stefni að því að sofa fram að hádegi
Hádegismatur; Salat á Vegamótum...er að fara á fund sko.
Millibiti; Skyr.is drykkur
Kvöldmatur: Nautakjöt og steikt grænmeti með hvítlaukssósu.
Kvöldsnarl: ávextir
Hef ekki tíma til að reikna út orkuna núna...geri það um leið og ég get.
Loksins er hnéð mitt orðið alveg gott og ég gat gengið á brettinu í 22mín..eða 2km. Jibbíjei.

2 Comments:
já :) þú hefur sýnt svaka árangur með því að borða 1800 hitaeiningar þannig að það ætti alveg eins að vera núna :) gott að hnéð er orðið gott :)
Þú gerir auðvitað það sem virkar best fyrir þig. Ég er einmitt að auka hitaeininganeysluna mína núna. Er að æfa slatta og langar meira að reyna að stabilisera brennsluna mína bara... ef það er þá hægt, hehe. En ætla allavegana að prófa þetta í smá tíma og hafa þá markmiðið að halda þyngdinni ;)
Post a Comment
<< Home