Sigga bloggari

Kolvetnafíkillinn tjáir sig!

25.2.05

Letihaugur!

Stundum er maður bara svo latur að það liggur við að það fylgi því verkir.
Ég var í allan dag að reyna að peppa mig upp í að gera eitthvað, fara í ræktina og taka til og bara allt sem ég þurfti að gera.
Endaði svo á því að fara bara í heimsókn til Ömmu og kjafta við hana. Þannig að ég gerði bara ekki neitt af viti. Ekki gott sko.

Enn ég er ánægð með matseðilinn í dag...eða allavegana so far.
Morgunmatur(kl12): 3 hrökkbrauðssneiðar með spæjó og osti og tilheyrandi tómötum.
Kaffitími (eða kl 15): Skyr.is drykkur með mangó og hvað það nú heitir.
Kaffitími2(kl 17): Pínulítill biti af gullosti, ekkert kex og engin sulta..sem var í boði sko!
Snarl (kl 18); Herbalife prótein bar-takk litli bróðir, hann veit reynar ekki að hann gaf mér hann;)
Kvöldmatur: Grilluð nautasteik með salati og fetaosti....og smá Rauðvín- upphitun fyrir morgundaginn sko.

Jæja nú er það bara ædolið og svo verður mar að fara að defurra sig fyrir árshátíðina á morgun...já og læra lagið og klára myndasjóvið. Eins gott að drífa í þessu til að bæta upp fyrir letikastið í dag.
Já og svo á bara að láta mann vakna fyrir allar aldir í fyrramálið til að fara út að labba með hinum átaksstelpunum. Sjáumst ferskar í fyrramálið:=)

Ég geri ekki ráð fyrir að blogga á morgun, enn reyni að láta í mér "heyra" á sunnudaginn.

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

mmmm rauðvín... mig langar í svoleiðis ;) annars bara góða skemmtun annað kvöld :)

kv, eg_get

10:40 PM  
Blogger Lilja said...

Skemmtu þér vel í kvöld ;)

12:41 PM  

Post a Comment

<< Home