Dagur eitt púnktur
Jæja þá er það bara að byrja á þessu bloggi.
Þetta er örugglega tilraun númer 5000 ég er alltaf að byrja að blogga og hætti svo jafn óðum!
Allavegna nú er átakið byrjað fyrir alvöru og nú skal sko tekið á því fram á sumar að minnsta kosti.
Markmiðið er einfalt: 10 kg af fyrir brúðkaupsdaginn 25. júní 2005. Það eru 123 dagar þangað til. Svo vonandi er markmiðið ekki óraunhæft.
Vissulega væri gaman ef mér tækist að léttast meira enn það er líka um að gera að setja sér ekki of há markmið í byrjun.
Allavegna hér kemur matseðill gærdagsins:
Ég vaknaði reynar ekki fyrr en um hádegi þannig að máltíðirnar gátu nú ekki verið mjög margar:)
Morgunmatur: 2 hrökkbrausneiðar með mjööög þunnri sneið af spæjó, osti og tómati.
Hádegismatur: Salat í boxi úr 10-11. Mest kál og tómatar og gúrka, svolítið af lauk og mais baunum og 2 egg. Smá sletta ranch sósa með.
Kvöldmatur: Fiskisúpa og 2 speltbollur með osti....eða voru þær 3?
Hreyfing: ca 15 mín á hjóli og 5 mín á bretti (helv. hnéð að fara illa með mig þessa dagana) og prógrammið mitt í gegnum tækin.
Nokkuð góður fyrsti dagur. Vonandi verður dagurinn í dag ekki verri.

6 Comments:
Hæ og velkomin í hópinn... frábært hjá þér að blogga um átakið... ég er með linka á minni síðu á fullt af skvísum sem eru í átaki... svo finnst mér markmiðið þitt vera vel raunhæft :) Gangi þér svakalega vel... og vonandi er þetta síðasta tilraunin... reyndar lít ég svo á að maður þurfi alltaf að vera í átaki þ.e.a.s. þetta verður að vera breyting á lífstíl því annars verður maður bara aftur jafn feitur ef ekki feitari :)
kv, eg_get
http://www.blog.central.is/eg_get
Sæl
Ég var einmitt að byrja með mitt eigið átaksblogg í gær :) Vildi bara óska þér góðs gengis :) Lít við hjá þér líklega aftur :)
kv
Nínas (ps bætti þér við á síðuna mína)
Gangi þér rosa vel :)
Hæ Sigga. Gott hjá þér að skella þér á bloggið. Vonandi verður það þér mikill stuðningur að skrifa um það :) Tví tví og hlakka til að mæta í brúðkaupið að sjá þig geislandi sæta :) Kv EMS
Hæ hæ og velkomin í átaksbloggheima eins og ég vil kalla það. ÉG setti þig í linkana mína, vonandi allt í lagi :-D
Kveðja,
bogga
Velkomin í klúbbinn skvísa! Dagurinn lítur bara mjög vel út hjá þér! Þetta er einmitt mjög raunhæft markmið, þú verður sko skvísubrúður :P
*knús*
Post a Comment
<< Home