Fyrsta svindlið!
Ég var nú bara nokkuð ánægð með mig framan af deginum.
Enn svo féll ég í freistni...ekkert alvarlega enn samt frekar fúlt svona á þriðja degi.
Matseðillinn var svona:
Morgunmatur: Cherrios með fjörmjólk
Morgunkaffi: Skyr.is drykkur með vanillu og kaffibolli
Hádegismatur: Salat úr afganginum af kjúlla síðan í gær og 1/2 líter diet kók
Kaffitimi: smá biti harðfiskur og líter af vatni (fattaði að ég var ekki búin að drekka neitt vatn í dag)
Kvöldmatur: Sushi ca 8 bitar og smá sletta af Eggjanúðlum með kjúlla og grænmeti (frá Nings) og slatti af dietkóki.
Svo er ? með kvöldkaffið ætli ég skelli mér ekki bara á eitt epli eða svo. Best að kíkja í isskápinn.
Dagurinn semsagt byrjaði vel og í rauninni alveg ferlegt að skemma hann svona með því að nenna ekki að elda kvöldmat. Enn þetta hlýtur nú samt að vera skárra enn einn sveittur með frönskum...erhaggi...mar verður að líta á björtu hliðarnar.
Já og hreyfingin..engin í dag fyrir utan smá hlaup fram og til baka í vinnuni sem teljast nú varla með.
Jæja best að halda áfram að leika mér í Photoshop...er að vinna smá verkefni fyrir árshátíðina í vinuni...svaka stuð.

3 Comments:
Júhú... miklu skárra ;)
kv, eg_get
Bíddu og hvar er svindlið? Er þetta ekki fínasti dagur bara?
Hvar er svindlið segi ég líka???
Post a Comment
<< Home