Dagur 2
Ég er bara búin að hafa það mjög gott í dag og er bara voða bjartsýn á þetta átak.
Ég ætti nú kannski að segja ykkur sem ekki þekkið mig eitthvað frá mér. Ég er semsagt 30 ára og 4 daga gömul og í nettu sjokki yfir því sko.
Ég er ein af þeim sem er búin að vera feit frá því ég man eftir mér enn svona eftir á að hyggja kannski bara þybbin þangað til fyrir nokkrum árum.
Ég er í dag 40 kg yfir kjörþyngd og stefni að sjálfsögðu á að ná henni á endanum.
Fyrir ári síðan nákvæmlega fékk ég nóg af mér og mínu spiki. Ég fór í átak og studdist við South beach matarræðið. Það gekk í sjálfu sér mjög vel. Ég missti 10 kg á 3 mánuðum. Síðan kom sumar og þá nennti ég þessu ekki alveg og ákvað að taka mér pásu. Pásan entist að sjálfsögðu mjög lengi enn ég stóð nokkurn vegin í stað í þyngdinni fram á haust þegar ég tók smá skurk aftur og byrjaði í leikfimi og svona, léttist þá um svona 3kg. Síðan um jól er ég búin að vera hræðileg og éta eins og svín og er búin að þyngjast aftur um þessi 3kg. Þannig að núna er ég að taka mig upp á afturlöppunum og halda áfram. Vonandi mun bloggið hjálpa mér að halda mig á mottunni.
Planið er núna að forðast einföld kolvetni enn borða bara hollan mat að öðru leiti. Er ekki alveg að fíla matarræði sem bannar mér að borða gulrætur og mitt ástkæra Cherrios. Svo er bara að sjá hvernig gengur.
Jæja nóg röfl í bili. Endilega setið inn ykkar blogg í commentin svo ég geti sett inn linka á ykkur.
Matseðillinn í dag leit svona út:
Morgunmatur: 2 speltbollur með osti
Hádegismatur: Skyr.is drykkur með vanillu og 1 lítill poki gulrætur (65gr held ég).
Kaffi; Atkins morning shine bar með jarðarberjum.
Kvöldmatur: Kjúklingabringa með fullt af káli tómötum og smá fetaosti og hvítlaukssósa úr sýrðum rjóma.
Kvöldsnarl: Chock Wafer syrkurlaust súkkulaði.
Svo drakk ég einn og hálfan líter af vatni og einn easybody fat burner og helling af diet kók.
Ég er ekki alveg farin í það að reikna kaloríur ennþá eins og þær sem eru virkilega duglegar enn kannski nenni ég því einhverntíman.
Já og hreyfingin. 10 mín á bretti...og svo 15 mín á hjóli. Veit ekki alveg hvað ég á að gera við þetta helv. hné. Var farin að vera alveg 30 mín á brettinu enn er núna alveg dauð eftir 10 mín.
Svo létt lyftingaprógramm...var ekki alveg að nenna þessu í dag.
Vinna í fyrramálið...búin að vera í vikufríi...vonandi er ástandið sæmilegt þar núna.

7 Comments:
Fínn dagur... er ekki bara fínt að hjóla ef hnéð er að bögga þig :) hvað er þetta easybody fat burner??? er þetta eitthvað sem virkar? hehehe
kv, eg_get
Velkomin í hópinn ;) Líst vel á daginn hjá þér. Mátt alveg linka á mig, mín síða er hér ;)
Humm þetta esybody virkar alveg örugglega ekki. Er með L-Carnitini sem á víst að hjálpa við fitubrennslu. Mér finnst þetta bara ágætt á bragðið, er að reyna að minnka dietkókið sko.
Hey Lilja ég var með þér í Hjúkrun!
Velkomin í hóp átaksbloggara, átt örugglega eftir að ná af þér 10kg fyrir brúðkaupið.
Hey kúl :D Varstu með mér á ári eða? Er að reyna að tengja... eða kannski heitiru ekkert Sigga í alvörunni.
Já ég var með þér á ári.
Post a Comment
<< Home