Sísvöng
Ég er eiginlega allt of sybbin til að skrifa neitt af viti. Var að koma heim af kvöldvakt og var svo svoldið lengi eftir hana að kjafta við stelpurnar á næturvaktinni.
Ég er búin að láta plata mig til að syngja á árshátíðinni á laugardaginn...Ómægot. Ég hef aldrei sungið neitt nema á 5. glasi..og stundum í sturtunni.
Allavegana fólkið sem hefur heyrt mig syngja á 5 glasi vill endilega fá meira að heyra. Verst að maður er orðinn of gamall í ædolið :s
Matseðillinn í dag var svona
Morgunmatur: Cherrios og fjörmjólk
Hádegismatur: Smá fiskisúpa(sem var ekki góð) og2 speltbollur með osti.
Kvöldmatur: Salatbakki ala Landspítali, allskonar gras, smá pasta og pínu Kartöflusalat(skammskamm) Ein tínítæniponsu sneið af Gulrótarköku...hún bara var á borðinu á kaffistofunni og ég bara át hana áður enn ég hugsaði.
Snarl: Epli og 3 hrökkbruð með osti skinku spæjó og Tómötum...geggjað gott.
Ég var eiginlega svöng í allan dag...kannski af því ég borðaði engan heitan mat ... eða ég veit ekki.
Svo hreyfði ég mig heldur ekkert í dag, var með brjálaðan hausverk þegar ég vaknaði og bara meikaði ekki að gera neitt af því sem ég ætlaði að gera.
Stefni ótrauð á ræktina á morgun og svo út að labba með Völlu á laugardaginn fyrir söngæfingu..híhí.
Anyway farin að sofa...þetta næturbrölt gengur sko ekki.

4 Comments:
öhömm... maður verður að hugsa áður en maður stingur einhverju upp í sig... fínn dagur fyrir utan gulrótarkökusneiðina... reyndar líka full mikið af kolvetnum fyrir minn smekk ;)
kv, eg_get
Mér sýnist þetta hafa verið fínn dagur, en nátturulega fyrir utan gulrótarkökuna! :)
kv. 75kg
Jamm það vantaði sko Prótein, ekki sprning. Bæti úr því með nautakjöti í kjöld...namm namm:)
Hurðu, mæting kl hálfellefu í fyrramálið fyrir utan Kaffi Nauthól :D
Síjú beibí, fínn dagur annars... (Þarf ekkert að minnast á kökuna, þú veist þetta alveg ;))
Post a Comment
<< Home