Góður dagur!
Þessi dagur varð bara ansi góður. Svindlaði ekkert og langaði ekkert til þess.
Svona var matseðilinn:
kl 12: 2 sneiðar af fína þýska brauðinu með osti og spæjó
kl 16 : Skyr.is drykkur með mangó.
kl 19: Salat með túnfiski og eggjum og fullt af káli og grænmeti.
kl 00: Eas prótein bar.
Humm þegar þetta er komið svona á "prent" þá sé ég að þetta hefur nú líklega verið heldur lítið sem ég borðaði og doldið langt á milli. Skrítið suma daga er maður síétandi og aðra daga þarf maður að minna sig á að borða. Mig langaði bara ekkert í mat í dag. Kannski var samviskubitið síðan í gær eitthvað að þvælast fyrir mér líka. Mér finnst aþað alveg ferlegt hvað ég er lin við sjálfa mig.
Jæja nú er kominn tími til að hlunka sér í bælið og reyna að dreyma eitthvað skemmtilegt.
Á morgun ætla ég sko að hafa KJÖT í matinn. Mér finnst ekki gaman að vera svona tvær kvölvaktir í röð og borða bara salat. Ég þarf mitt kjöt sko, kannski maður grilli bara á morgun ef það verður sæmilegt veður.

1 Comments:
já frekar lítið... en allt hollt ;) enginn bjór og nachos ;) annars myndi ég ráðleggja þér að prófa að nota hot.is og skrá inn allt sem þú borðar... ég geri það og plana gjarnan daginn fyrirfram... svo reyni ég að borða 1200-1300 hitaeiningar... en þú svo sem veist þetta allt ;)
Post a Comment
<< Home