Sigga bloggari

Kolvetnafíkillinn tjáir sig!

1.3.05

-1.3kg.

Ég get svo svarið það, ég er frekar lélegur bloggari held ég. Gleymdi bara alveg að skrifa í gærkvöldi, eða kanski var ég bara með svo mikið samviskubit að ég blokkaði það út...hver veit.
Ég steig á vigtina í dag og hún sýndi 1.3 kg minna enn síðasta þriðjudag sem hlýtur að teljast ansi gott miðað við sukk og svindl.

Matseðill gærdagsins var einhvernvegin svona:
kl 12: 2 þýskar fittnesbrauðsneiðar með osti og spæjó (eitthvað þýskt heilsubrauð á tilboði í hagkaup sko).
kl 15: skyr.is drykkur með vanillu.
kl 18:30: salat með kjúlla og túnfiski og allskonar káli og huggulegheitum (úr nóatúni).
kl 20-21: Nartaði í epli og appelsínur og eina lúku af poppi.
kl 00:30: Einn lítill bjór og slatti af Nachos með salsa og ostasósu.
kl 02: smá harðfiskbiti og EAS bar, morning energy.

Ég veit það ég átti ekki að fá mér Bjór og Nachos...ég fór með vinkonu minni úr vinnuni á Kaffibrennsluna eftir vaktina eins og við gerum stundum og þar var ekki beint mikið úrval af mat ... og svo langaði mig bara svo mikið í einn bjór. Ég er farin að hljóma eins og alki hérna ég veit það. Mér finnst það erfiðasta í þessu öllu saman að neyta mér um bjór einstaka sinnum, það er svo svakalega sósjal sko. Ég var að spá í að setja það bara ekkert inn í matseðilinn, enn komst svo að því að það hverfur ekkert þó ég skrifi það ekki. Svona getur maður verið bilaður.

Allavegana vonandi verður dagurinn í dag betri. Er aftur að fara á kvöldvakt og vaknaði um hádegi...ohh ég elska það að fara fram kl 12 og skríða fram í sófa og horfa á nágranna svona meðan ég er að vakna almennilega. Enn þessir kvöldvaktardagar nýtast nú yfirleitt ekki mjög vel. Nú ætla ég samt að drífa mig í að taka aðeins til áður en ég fer út.

Kannski skrifa ég aftur í kvöld þegar ég kem heim! Ef ég hef góða samvisku allavegana.

4 Comments:

Blogger lalala said...

Til hamingju! flott að missa 1,3 kg á einni viku :) Þú hefðir sennilega misst meira ef þú hefðir sleppt sukkinu :) Flott hjá þér að skrifa það inn því að ef þú sleppir einhverju þá ertu bara að svindla á sjálfri þér :) Vertu nú dugleg skvísa :)

9:23 PM  
Blogger Lilja said...

Til hamingju með burtflogin kíló ;) Jámm, hefðir átt að sleppa bjórnum og nachosinu, veist það alveg, hehe ;)

11:10 PM  
Anonymous Anonymous said...

Ég ætla ekkert að skammast í þér fyrir svindlið þar sem þú gerðir það sjálf ;) Til hamingju með kílóamissinn :) Kv. SlimBride

11:53 PM  
Blogger Sigga said...

Takk fyrir stelpur!

12:33 AM  

Post a Comment

<< Home