Þynnkudagur
Þá er árshátðin búin. Það var rosa gaman og ég drakk náttúrulega miklu meira enn ég hafði gott af þannig að ég er búin að vera doldið krumpuð í dag.
Ég ætla ekki einu sinni að ergja mig á því að spá í hvað ég borðaði enda er það bara búið og gert. Ég held samt að ég hafi örugglega brennt slatta af því sem ég át því ég dansaði sko alveg eins og bavíani heillengi. Ég uppskar doldið sárar fætur enda ekkert grín að dansa á háhæluðum skóm þegar mar er á annað hundruð kíló :) Það skiptir samt engu máli það var svooo gaman.
Ég held reyndar að söngatriðið hafi verð hálf misheppnað..amk heyrðist ekki mikið í mér....sem er sko alveg ágætt ef út í það er farið:)
Nú byrjar ný vika og það verður spennandi að sjá hvað vigtin segir á þriðjudaginn, ég sá ansi góða tölu svona miðað við á laugardagsmorguninn enn geri mér nú ekki miklar vonir eftir sukk gærdagsins. Ég á alveg eftir að plana matseðil morgundagsins, best að fara í það núna.

2 Comments:
Hæ hæ ég er líka að byrja með átaksblogg... gott að þú skemmtir þér vel á árshátíðinni :)
Ég ætla heldur ekkert að hafa áhyggjur af vigtinni nærri því strax ;) Bara leyfa þessu helgarsukki að jafna sig fyrst ;)
Post a Comment
<< Home