Sigga bloggari

Kolvetnafíkillinn tjáir sig!

2.3.05

Morgundagurinn!

Jæja ég náttúrulega dreif mig bara í að setja inn matseðil morgundagsins og reikna hann út.
Hann er svona:
Morgunmatur: Cherrios með fjörmjólk 400 kkal
Hádegi: Skyr.is drykkur 142 kkal
Kaffi: Atkins bar 230 kal
Kvöldmatur: Kjúklingabaunabuff með sveppasósu og salati 750 kkal.

Samtals gera þetta rúmlega 15oo kal sem gefur mér þá séns á að bæta einhverju við uppá 200 til 300 ef ég er að deyja úr hungri.

5 Comments:

Blogger Lilja said...

Prófaðu bara hvernig gengur með þetta margar kaloríur og sjáðu hvernig það fer í þig. Svona orkureikningsforrit eru nú ekki alltaf rétt, þetta er líka svo einstaklingsbundið hvað maður brennir miklu.

10:42 PM  
Blogger lalala said...

já maður verður bara að finna þetta út... mér finnst ég verða nú ekkert rosalega svöng af því að borða 1200-1300 hitaeiningar ;) Ég hef alltaf heyrt að konur ættu að neyta 2000 hitaeiningar á dag... er það rugl hjá mér? Reyndar skiptir svo máli hvað maður er að borða því að matur er mis saðsamur ;)

En um að gera að prófa sig áfram skvísa :)

8:23 AM  
Blogger Sigga said...

Jamm það er alveg rétt hjá þér að konur í kjörþyngd eiga að borða svona 2000kal. Enn þegar maður er að burðast með ansi mikið af aukakílóum þá eyðir maður meiri orku og þarf þar að leiðandi meira til að viðhalda þyngdinni.

1:29 PM  
Anonymous Anonymous said...

Hæ hæ og takk fyrir góðar kveðjur :)
Þetta lítur vel út hjá þér og ég hlakka til að fylgjst með árangrinum hjá þér
Kveðja Trilla

2:44 PM  
Anonymous Anonymous said...

Hmm...ég var nú með 75 aukakíló utan á mér í febrúar í fyrra og fór í svona brennslumælingu hjá Reykjalundi. Þar kom í ljós að ég brenndi rétt rúmlega 2000 hitaeiningum á dag þrátt fyrir öll aukakílóin. Ég hélt þá að ég væri með eitthvað sérstaklega hæga brennslu en læknirinn þar sagði að það væri mjög algengt að konur í kjörþyngd þyrftu um 1200-1400 hitaeiningar á dag. Mítan segir auðvitað 2000 en hvað á maður að halda??? ;)

Finndu bara hvað er best fyrir þig. Ef þér líður vel í ákveðnum hitaeiningafjölda og ert að missa kg er það bara hið besta mál :)

Kolla
http://www.pjus.is/kolla

5:04 PM  

Post a Comment

<< Home