Sigga bloggari

Kolvetnafíkillinn tjáir sig!

6.3.05

Helgin á Hælinu búin!

Já hún er búin þó fyrr hefði verið. Ég hef sko ekki unnið heila helgi síðan í fyrra og mikið helv. var tíminn lengi að líða svona alveg í lok dagsins. Enn ég meikaði þetta nú samt.
Matarlega stóð ég mig miklu betur en ég þorði að vona. Borðaði ekkert sem ekki má.
Ég hreinlega man ekki alveg nákvæmlega hvað fór ofan í mig og nenni engan vegin að telja það upp heldur.
Ég var búin að ákveða að hafa nammidag í dag enn svo bara langaði mig ekkert í nammi þannig að ég sleppti því bara. Vonandi kemur það fram í jávæðum tölum á vigtinni góðu á þriðjudaginn.

Jæja ég er alveg að líða útaf hérna...ætla að fara í heita sturtu og svo bara að lúra.
Nenni ekki að plana matseðil morgundagsins enn ísskápurinn minn er alveg troðinn af hollustu þannig að ég spái bara í það þegar ég vakna.

5 Comments:

Blogger lalala said...

Jájá það er allt í lagi svo lengi sem þú ferð ekki að freistast í pizzu ;)

9:46 PM  
Blogger Sigga said...

Sem betur fer er ekki boðið upp á þvílíkan eðal mat eins og flatböku á hælinu:)

10:23 PM  
Anonymous Anonymous said...

Bwahaha! Eðalhæli það!
Gangi þér vel dúlla, gott að helgin var ágæt, hefði getað verið mikið verra, til dæmis að klára pítsuna! :P

10:36 PM  
Blogger Lilja said...

Gott hjá þér að vera ekki að fá þér nammi bara af því að þú máttir það ;) Flott hvað þú stóðst þig vel um helgina og vonandi verður vigtin svaka góð við þig á þriðjudaginn.

11:12 PM  
Anonymous Anonymous said...

Já flott hjá þér. Ég bíð spennt eftir nýjum tölum hjá þér, híhí. Annars var ég að byrja á danska. Við verðum sko flottar í brúðkaupunum í sumar ;) Kv EMS

11:36 AM  

Post a Comment

<< Home