Ég held að heilinn minn sé í mauki!
Púff ég verð sko ekki mjó með þessu áframhaldi.
Fór í hádeginu á fund á Vegamótum og borðaði kjúklingasalat þar. Svo var ég á flakki langt fram eftir degi. Meðal annars að leita mér að brúðarskóm og það er sko ekki auðvelt. Einhverntíman á leiðinni var ég alveg að dreapast úr hugri og hvar svo ljónheppin að finna Herbalifebar í töskunni minni.
Þegar ég kom heim og ætlaði að elda Guttorm fann ég hann bara beinfrosinn greyið inni í frysti. Já ég GLEYMDI að taka hann út í gær. Gæti það verið ég held að ég þurfi að fara að láta athuga með hausinn á mér. Haldið þið að þetta hafi eitthvað með blóðsykursfall að gera .... eða bara plein heimsku?
Allavegana var mín bara alveg búin eftir daginn og sendi kallinn eftir...já haldið ykkur fast....PIZZU! Bara svona ekta dómínós. Ég réðist á hana af áfergju enn áttaði mig svo og endaði á því að borða svona 1/3 af 12" Pizzu. Svo var ég náttúrulega að drepast úr nammiþörf eftir þetta allt saman og borðaði einn pakka af Gajol og nokkra bita af lowCarb súkkulaði. Og svo til að toppa þetta nú allt saman þá sit ég núna og sötra lite bjór...enn bara hálfan sko.
Ég legg ekki í að reikna kaloríurnar það er sko bara til að svekkja mig.
En á morgun kemur nýr dagur og hann verður einhvernvegin svona:
Kl 07: Cherrios og Fjörmjólk
Kl 10: Skyr.is drykkur
Kl 12/13 Hummmmmm hvað ætli Hælið bjóði uppá...annað hvort fisk eða salat held ég.
Kl 16: Morning shine bar og epli eða gulrætur..eða bara bæði.
Kl 21: Grillaður Guttormur...ef ég verð heppin og kallinn nennir að grilla handa mér því ekki nenni ég því sjálf eftir 12 og hálfan tíma á hælinu:)
Jæja best að fara að fylgjast með restinni af ædolinu...ég get ekki hringt það er alltaf á tali...dem!

4 Comments:
Sussumsvei :) þú hefðir getað farið í Nóatún og keypt grillaðan kjúkling... það er fínn skyndibitamatur... og keypt þér svo tilbúið salat meira segja með ;) En það er rétt hjá þér það kemur dagur eftir annan dag... og þú verður bara dugleg... annars held ég að það sé ágætt ráð að skrá samt inn hitaeiningarnar fyrir daginn... fínt að sjá það svart á hvítu/gulu ;) Hvaða dagar eru aftur vigtunardagar?
já talandi um ædolið... ég eyddi ekkert smá löngum tíma til að reyna að hringja inn atkvæðið... náði svo loksins inn með gemsanum rétt áður en þeir lokuðu... það dugði því miður ekki til :) Hvern kaustu?
Úff, svona pizzur eru sko stórhættulegar fyurir mig. Ég hreinlega finn að ég fitna ef ég borða þær. En ég get borðað pizzur með þunnum botni án þess að þær geri mikinn skaða, ef ég passa að borða bara smá ;)
En sko, hvað er Guttormur???
Júmm þetta var náttúrulega bara alveg ferlegt þarna með ædolið ég kaus sko Heiðu finnst hún best!
Já og Vigtunardagar eru Þriðjudagar.
Híhí Guttormur er Naut og mikið helv.var hann góður.
Post a Comment
<< Home