Sigga bloggari

Kolvetnafíkillinn tjáir sig!

7.3.05

Perfect day

já eða þannig sko.
Vaknaði um kl 1030 eftir 11 klukkutíma svefn, það var sko ljúft.
Ég var að dúlla mér að borða morgunmatinn og lesa dagblöðin fram yfir hádegi en þá fór ég í göngutúr um hverfið. Ég labbaði alveg í 50 mín mis rösklega eftir því hvaða lag ég var með í eyrunum (ég elska ipodinn minn). Síðan er ég bara búin að dingla mér í tölvunni og reyna að búa til boðskort fyrir brúðkaupið. Hvernig í ósköpunum á ég eiginlega að orða það?
Matseðillinn var svona
kl 11 : Cherrios og fjörmjólk.
kl 15: 3 hrökkbrausneiðar með spæjó, osti hvítlaukssósu tómati og eggi.
kl 18: Ofnbakaður þorskur með pestó og grænmeti.
Ég var eitthvað að reyna að reikna hitaeiningarnar og komst að því að þetta eru samtals svona 11oo kkal. Ég er náttúrulega ekki alveg hætt að borða í dag, er að spá í að skella mér á einn skyrdrykk og svo kannski smá low carb súkkulaði.
Þá ætti orkan að fara upp í 1500 kal. Sem er bara nokkuð gott.

Svo er það matseðill morgundagins:
Morgunmatur: Cherrios og Fjörmjólk. 400 kal
Hádegismatur: Skyr.is drykkur og speltbolla með osti. 350 kal.
Kaffi: Atkins morning shine bar 150 kal
Kvöldmatur: Kjúllabringur, grillaðar með salati, furuhnetum og fetaosti. 700 kal

Samtals 1600 kkal.
Svo er vigtunardagur á morgun en ég er ekkert mjög bjartsýn á að hún verði góð við mig.

2 Comments:

Blogger Lilja said...

Oh, ég elska svona salat með fetaosti og ristuðum furuhnetum... og ólívum ;) Hlakka til að vita hvernig fer með vigtunina ;)

11:55 PM  
Blogger lalala said...

sammála Lilju... ég elska líka svona salat og finnst æði að hafa kjúkling líka saman við mmmmm Annars fannst mér þetta vera bara fínt hjá þér... og ég vona að vigtin þín verði betri við þig en mín var við mig ;)

8:00 AM  

Post a Comment

<< Home