Vigtin góða!
Ákvað að skella þessu bara inn strax vigtin var afskaplega góð við mig, sérstaklega miðað við svindlið í vikunni.
Hún sagði 1.2 kílói minna enn síðasta þriðjudag eða samtals 2.5 kg á 2 vikum...ekki slæmt það.
Þá eru bara 7,5 kg eftir fram að brúðkaupi og það eru 109 dagar, kannski ætti ég bara að stefna á meira. Sjáum til hvernig gengur. Það verður bara sett nýtt markmið þegar ég er búin að ná þessu markmiði.
Humm ég held að þetta forrit þarna Mathákur sé pínu kreisí ég fór að lesa á Cherriospakkann í morgun og komst að því að það eru 369kal í 100 gr og ég borða nú aldrei meira en 50 gr í einu þannig að það eru 185 og svo eru tæpl. 43 kal í 100 gr af fjörmjólkinni og ég nota svona 200-250 ml þannig að þetta eru samtals svona 300 enn ekki 400. Munar um það, eins gott að reikna rétt. Því þá get ég borðað meira:)

3 Comments:
Frábær árangur... kannski ég fái bara vigtina þína lánaða ;)
Já mér finnst hot.is vera betra... enda skrái ég mínar vörur þar inn :) mjög nákvæmt sko... og já manni munar sko um 100 hitaeiningar ;)
Ég styðst við hot.is og aðrar síður á netinu líka, en set þetta allt sjálf inn í Excel hjá mér.
Til hamingju með þyngdartapið :D
Frábært Sigga. Til hamingju með þetta :) Gaman að sjá þegar vigtin fer niður. Kv EMS
Post a Comment
<< Home