Næturvaktirnar búnar.....sem betur fer!
Ekki var nú þessi nótt betri enn hinar. Hafði enga matarlyst heldur, en langaði samt voða mikið í eitthvað. Ferlega pirrandi. Ég endaði á Þrumaranum einu sinni enn og svo klikkti ég nú alveg út með þvi að fá mér Súkkulaði, bara svona alvöru lakkrísdraum. Hrikalega var hann góður enn hrikalega var ég með mikið samviskubit þegar ég var búin að hakka hann í mig. Gott á mig bara.
Annars leit nú út fyrir að nóttin yrði ansi strembin enn svo varð sem betur fer ekkert úr því. Ég hefði bara alveg fríkað út sko.
Svo þegar við vorum alveg að sofna kl 06 fengum við smá adrenalínkikk sem varð svo ekkert úr sem betur fer. Það er nefnilega ekkert sérlega gaman að standa í einhverjum stórræðum akkúrat á þessum tíma sólarhrings. Enn ef þið hafið séð konu á náttfötunum á fullri ferð á Miklubrautinni kl 6 í morgun, jafnvel að fara yfir á rauðu, þá var hún á leiðinni til mín. Eða ég held hún hafi verið á náttfötunum :)
Jæja nú VERÐ ég að fara að sofa áður enn ég missi mig alveg í blaðrinu.

11 Comments:
Gott að næturvaktirnar eru búnar, ég var einmitt að klára mína törn líka. Nóg að gera svo sem, en engin stórræði. Vonandi hressistu nú sem fyrst og ekki vera með allt of mikinn móral yfir blessaða lakkrísdraumnum ;)
já þið næturdrottningar , gott að vökunum er lokið í bili ;) ohh frá 05 til 06 er versti tíminn finnst mér úff , týpískt að þá verði uppákomur. Gangi þér svo bara þrusuvel á morgun ;)
Ég veit ekki hvernig fólk sem vinnur næturvaktir nær því að halda sér í formi!! Þegar ég er vakandi lengur þá er ég allan dagin eftir á svöng og langar í junk og plús meðan allir aðrir eru sofandi er ekkert smá nice að stelast í allt saman sem til er !! Tala nú ekki um að ef ég væri á íslandi og kæmist í alvöru lakkrísdraum mmmmmmm ég að láta mér dreyma bara !!!
Gott að næturvaktirnar eru búnar í bili, nú getur þú kannski einbeytt þér að að láta þér batna :)
Kveðja Lotta
hmmm skrítið ! commentið mitt síðan í gær hefur ekki dottið inn ??? En vildi bara óska þér góðs gengis í vikunni er viss um að þú verður alveg svakalega, hrikalega , ofboðslega dugleg ;)

meira skrítið !! nú sé ég að gamla kommentið hefur komið en þegar ég kom inn á síðuna var eins og 1 væri bara búinn að commenta , úfff hehe
Þetta kommentakerfi er soldið kreisí...ýmist í ökkla eða eyra!
Post a Comment
<< Home