Sigga bloggari

Kolvetnafíkillinn tjáir sig!

13.3.05

Djísús kræst maður!

Þetta er nú meiri helgin. Ég er á næturvöktum (tvær búnar og ein eftir). Ég er gjörsamlega að kafna úr kvefi og hósta enn ekki með hita svo ég hef látið mig hafa það að mæta í vinnuna. Ég veit ég er alvega á gráu svæði með hvort ég ætti að vera heima eða ekki en hef einfaldlega ekki móral í að vera heima á meðan ég er ekki "alvöru lasin."
Þannig að ég get nú bara alveg sagt að ég sé frekar tuskuleg og hvort sem það eru næturvaktirnar eða eitthvað annað þá hef ég bara ekki haft nokkra matarlyst. Ég fór með þetta líka fína Kjúkingasalat með mér á föstudagskvöldið enn hef bara ekki getað hugsað mér að borða það. Síðustu nótt opnaði ég það meira að segja....enn lokaði því svo bara aftur.
Matseðillinn þessa helgina hefur því verið frekar dularfullur og td síðustu nótt borðaði ég bara 2 rúgbrauðssneiðar með osti alla nóttina.
Ég veit að þetta er ekki hollt enn svona er þetta bara. Ég er sem betur fer ekki oft á næturvöktum þannig að ég nenni ekki að stressa mig yfir þessu. Ég byrja bara aftur á hollu og góðu matarræði eftir helgina. Það hlýtur samt að vera betra sko að borða of lítið heldur enn of mikið þegar maður er að reyna að léttast...er það ekki?

Jæja kallinn er að koma með einhvern mat handa mér...best að gá hvað það er.

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

blessuð :D ´Vona að þér fari að batna ... farðu nú ekki of fljótt af stað. Það eru alveg trilljón pestar í gangi !! gangi þér svo vel í hollustunni í nýrri viku ;)

7:11 PM  
Anonymous Anonymous said...

Áts, ekki gott að vera svona slöpp :/ Reyndu að hrissta þetta úr þér og gangi þér vel á síðustu næturvaktinni :)

Kveðja Lotta

7:57 PM  
Blogger lalala said...

æjæj vonandi ertu að hressast... og ég vona líka að kallinn þinn hafi ekki komið með Dominos pizzu heim ;)

11:34 PM  

Post a Comment

<< Home