Enn fer vigtin niður!
Ég er búin að vigta mig í morgun og það eru 900 grömm farin í þessari viku. Frekar gott svona miðað við aðstæður. Geggjað! Þá eru samtals 3.4 kg farin á 3 vikum og ef ég næ að halda meðaltalinu kíló á viku þá á ég eftir að léttast um 14 kg í viðbót fyrir brúðkaupið...ekki verra! Enn ég held ég verði nú bara raunsæ og stefni á 6.6 í viðbót eins og upphaflega planið gerði ráð fyrir.
Ég svaf nú bara allan daginn í gær og fór svo bara aftur að sofa upp úr miðnætti þannig að mér telst til að ég hafi sofið 17 tíma á einum sólarhring....geri aðrir betur.
Vaknaði svo bara kl 09 í morgun hress og kát og það besta er að ég held að helvítis pestin sé að yfirgefa mig. Þannig að stefnan er sett á ræktina á eftir.
Matseðill dagsins er einhvernvegin svona:
Morgun: 2 sneiðar af sólkjarnabrauði með osti og spæjó 350kal
Hádegi: Skyr.is drykkur 150 kal
Kaffi: Einhver huggulegur próteinbar 250 kal
Kvöld: Spelt tortillur með Kjúlla og tilheyrandi 800 kal.
Millibiti: Græn vínber: 100 kal.
Samtals: 1650 kal
Jæja best að drífa sig í það að nota daginn í eitthvað uppbyggilegt.

5 Comments:
Flottur dagur og til hamingju með glæsó árangur á vigtinni þessa viku :)
kveðja Lotta
Vááá þvílík tímaeyðsla að sofa svona mikið hehehe... en þú hefur væntanlega verið svona þreytt eftir næturvaktirnar ;) ég held að ég gæti aldrei sofið svona mikið :) Til hamingju svo með árangurinn... ég væri alveg til í að léttast svona mikið :)
ekkert smá flott hjá þér, til hamingju ;) hvenær á svo að gifta sig ??
Oh það er svo næs að sofa. Ég sef nefninlega oftast allt of lítið, en svo get ég einmitt tekið svona syrpur þegar ég heg tækifæri til ;) Innilega til hamingju með þessi 900 grömm sem farin eru til viðbótar, alveg rosalega flottur árangur :D
Frábært Sigga. Til hamingju með árangurinn :) Þetta er alveg meiriháttar. Það væri náttlega toppur ef þetta héldist svona jafnt og þétt. Talandi um að verða skutla á brúðkaupinu :) Kv EMS
Post a Comment
<< Home