Loksins eðlilegur dagur!
Þessi dagur var semsagt með eðlilegra móti. Var á morgunvakt og vaknaði þar að leiðandi snemma. Sem er voða gott stundum sko þó það sé frekar erfitt. Það var frekar lítið að gera í vinnuni svona fram yfir hádegi enn svo fór aðeins að verða meira að gera. Eins gott maður annars hefðum við alveg bilast úr leiðindum sko!
Matseðill dagsins er svona:
07: Cherrios og fjörmjólk 250 kal
10: Skyr.is drykkur 150 kal
13: Salat með smá pasta og fetaosti og smá pítusósusletta 400 kal
16: epli og Hrökkbrauðssneið með osti 160 kal
19: Grænmetisbuff með Káli og speltbollu 400 kal
21: sykurlaust súkkulaði og gajol 250 kal
Samtals gera þetta ca 1610 kal. Ekki slæmt það. Vildi að allir dagar gætu verið svona.
Nú er bara að sjá hvað vigtin segir á morgun. Ég var allavegana þokkalega sátt við hana í morgun þegar ég stalst til að kíkja!
Já og svo er ég að fara að prófa stafagöngu. Mamma gamla vill endilega að ég komi með sér í svoleiðis. Enda synd að hanga inni á líkamsræktarstöðvum þegar veðrið er svona gott eins og í dag. Annars fór ég sko í ræktina í dag enn var agalega löt.

1 Comments:
Flottur dagur, og líst rosalega vel á þessa stafagönguhugmynd. Haltu áfram að vera dugleg :)
Kveðja Lotta
Post a Comment
<< Home