Sigga bloggari

Kolvetnafíkillinn tjáir sig!

20.3.05

Ágætis helgi búin!

Það er sunnudagskvöld, ég fæ stundum svona sunday blues. En það er ekki svoleiðis í kvöld. Ég plataði sjálfa mig nefnilega smá og skrapp aðeins í vinnuna í nokkra klukkutíma, vann fyrir aðra sem vinnur svo fyrir mig seinna. Gott mál.

Annars nenni ég ekki að pikka upp allt sem ég át um helgina en það var nú ekkert mikið og ekkert sem er alveg bannað (engin pizza allavegana!).
Ég er komin með smá vandamál. Er alveg ferlega lystarlaus allan daginn og þarf virkilega að pína mig til að borða. Ég skil ekkert í þessu. En svo á kvöldin þá er ég alveg kreisí svöng og langar bara í eitthvað brjálæðislega gott. Svo get ég sofið endalaust, ég sem má ekkert vera að því núna.
Vonandi er þetta bara tímabundið. Því annars held ég að ég lendi bara í einhverri vitleysu með matarræðið.
Sjáum til hvernig gengur núna í vikunni sem verður bara þokkalega venjuleg svona vinnulega séð. Reyndar er matarboð á miðvikudagskvöldið, tek bara á því þegar þar að kemur.

Jæja farin í bólið, þarf víst að vakna snemma!

2 Comments:

Blogger lalala said...

Þá skil ég þetta :) Ég gæti þetta ekki en ef maður er lystarlaus þá er þetta skiljanlegt ;)

8:36 AM  
Anonymous Anonymous said...

Ertu ekki bara að borða alltof lítið fyrri part dags ? Og flytja þannig svengdina yfir á kvöldin. Væri kannski sniðugt að athuga það. Gangi þér vel :)

Kveðja Lotta

10:31 AM  

Post a Comment

<< Home