Dagurinn í dag!
kl 11: cherrios og fjörmjólk 250 kal
kl 16: skyr.is drykkur 150 kal
kl 19: Grilluð nautasteik með kartöflum, fetaostsalati og sýrðsrjómasósu. og rauðvín með 900 kal.
Þetta gera samtals 1300 kal.
Svo fór ég í heimsókn til vinkonu minnar...svona ekta stelpukvöld, ég var búin að spara sko kaloríurnar í allan dag...enn held ég hafi nú alveg klúðrað þessu samt. Fékk mér súkkulaðiköku og ís. Það voru allavegana 500 kal, líklega meira. Þannig að þessi dagur fór nú eiginlega bara fjandans til. Dem!
Jæja ég sendi út leitarflokk eftir viljastyrknum mínum og athuga hvort hann finnst ekki um helgina. Allavegana ef þið rekist á hann sendið hann þá heim!
Góða nótt og góða helgi.
Sigga-98 dagar í brúðkaup!

5 Comments:
Gangi þér vel um helgina ;)
Mér finnst að þú ættir að reyna að dreifa hitaeiningunum betur yfir daginn... finnst hitaeiningafjöldinn um kvöldið vera alltof mikill skvísa ;) hefði frekað sparað hitaeiningarnar í kvöldmatinum... reyndu að deila þessu aðeins meira niður... og jú auðvitað að sleppa kökum og ísum ;) varstu ekki svöng fram að kvöldmat?
Ég væri alveg til í smá aukaviljastyrk líka, hehehe.
Fínn dagur hjá þér skvís ;) vona að þú hafir haft það gaman og gott um helgina, kanski ráð að hafa samband við óskilamunadeild lögreglunnar í sambandi við týnda viljastyrkinn ;) Annars er ég viss um að þú átt nóg af viljastyrknum
ja hérna .. þetta er svo skrítið .. það kemur stundum fram hjá mér þegar ég heimsæki síðuna þína eins og enginn hafi commenterað hjá þér, en svo þegar ég er búin að senda commentið kemur í ljós að fleiri eru búnir að senda ( þar á meðal ég hehe)
Post a Comment
<< Home