Nautilus
Jæja ég er hér enn. Þykist enn vera í átaki. Gengur enn ekki mjög vel.
Ég er reyndar að standa þokkalega í stað í þyngdinni og tosast svo niður svona annað slagið. Ég var að skoða fína exelskjalið mitt með vigtunum flesta þriðjudaga síðasta rúma árið og ég verð að segja að þrátt fyrir allt þá er ég á réttri leið. Kemst þó hægt fari. Það lýsir mér kannski bara soldið vel.
Allavegana dreif ég mig í það að kaupa mér kort í nýju Nautilus stöðina í sundlauginni í salahverfinu. Ég finn það alveg að ég verð að hreyfa mig eitthvað og ákvað að prófa þetta. Ég verð nú að segja að það var aðallega verðið sem togaði mig þangað. Það spilar samt líka inní að hafa sundlaugina og pottana þarna, mér finnst voða næs að fara í sund sko, sérstaklega til að liggja í pottunum.
Allavegana er ég búin að fara þarna þrisvar núna og líkar mjög vel. Æfingarnar eru svona hæfilega erfiðar og liðið þarna allt voða afslappað og eðlilegt. Stefnan er að mæta þrisvar í viku og taka einn ca klukkutíma hring í tækjunum sjáum hvernig fer!
Annars er hugur minn allur í brúðkaupsundirbúningi núna þegar það er mánuður til stefnu. Allt er að smella saman og ég vona að sem flest verði búið sem fyrst. Ég nenni ekki að standa í einhverju stressi á síðustu stundu. Það eru líka allir svo tilbúnir að hjálpa og taka þátt.
Þetta verður svooooo gaman ég bara get varla beðið.

1 Comments:
halló ! þú ert væntanlega orðin gift kona :D til hamingju með það !
Post a Comment
<< Home