Sigga bloggari

Kolvetnafíkillinn tjáir sig!

10.5.05

Gleymdi að vigta mig í morgun!

Humm þegar maður þykist vera í átaki og gleymir svo að vigta sig, er það ekki merki um áhugaleysi gagnvart átakinu?
Ég hef alltaf vigtað mig á þriðjudögum, stundum oftar en svo steingleymdi ég því bara í morgun og það er sko ekkert að marka vigtina nema strax eftir að maður vaknar. Kannski man ég eftir því í fyrramálið. Ég er nú ekkert bjartsýn neitt á huggulegar tölur sko. Enn það má alltaf vona.

Annars er búið að vera crazy að gera hjá mér síðustu dagana. Ég var alla helgina að föndra boðskortin og svo er alltaf eitt og annað sem maður er að græja og redda svona þess á milli.
Pantaði loksins hárgreiðsluna í dag, ég er búin að vera að láta það elta mig soldinn tíma, hef ekki hugmynd um af hverju. Nú er það helsta komið og bara milljón smáatriði eftir. Næsta mál á dagskrá er að finna kjólana á litlu pæjurnar sem gegna hlutverki hringabera og blómastúlku. Þessar frænkur mínar eru svo bissí að það liggur við að það þurfi að panta tíma með margra vikna fyrirvar hjá þeim. Vonandi reddast það nú samt í vikunni.

Jæja best að fara að snúa sér aftur að boðskortunum. Ég er öll í lími á puttunum og með pappírsskurði hingað og þangað. Ég get allavegana sagt ykkur það að það er ekki gott að fá lím ofan í pappírsskurð, búin að komast að því.

4 Comments:

Blogger lalala said...

Jæja hvað sagði vigtin svo þegar þú fórst á hana? :) ég gleymi nú aldrei að vigta mig nema þegar ég er að sukka hahahaha
Sé að það er brjálað að gera fyrir brúðkaupið... gangi þér vel með undirbúninginn :)

11:03 AM  
Blogger Helga said...

Er vigtin kannski bara flutt að heiman?

Rosalega flott boðskortið hjá þér, takk fyrir gott boð.
Kveðja Frá Coesfeld

2:54 PM  
Blogger Sigga said...

Ertu búin að fá kortið strax?
Sveimérþá það er aldeilis spítt á póstinum maður!

Vigtin skreið undir skáp...held hún sé að forðast mig:s

6:05 PM  
Blogger lalala said...

Til hamingju frú Sigga :)

12:45 PM  

Post a Comment

<< Home