Sigga bloggari

Kolvetnafíkillinn tjáir sig!

26.4.05

Lélegasti bloggarinn á vefnum.

Já ég er orðin alveg svakalega löt við þetta blogg, kannski afþví ég hef bara svo lítið að segja.
Er samt að spá í að breyta þessu aðeins og skrifa bara meira svona um lífið og tilveruna og svolleiðis.
Ég er nú bara búin að standa mig þokkalega í matarræðinu undanfarið. Engin svona meiriháttar afglöp sko. En samt var vigtin að stríða mér í morgun en ég er að vona að það hafi frekar með næturvaktir og öfugan sólarhring að gera en að ég hafi þyngst um hálft kíló!
Tékka allavegana á þessu aftur á morgun.

Annars er ég alveg á fullu að undirbúa brúðkaupið...svaka gaman. Er búin að redda músíkini í veislunni, sem mér finnst mikið afrek. Og það sem meira er ég er búin að kaupa skóna sem mér finnst töluvert meira afrek.
Svo er skreytingadótið loksins komið frá Ameríku, það kom með póstinum í gær enn ég var því miður ekki heima svo það þarf að sækja það á pósthúsið í dag. Ég er voða spennt að sjá hvað kemur upp úr kassanum. Ég hélt ég hefði ekki pantað neitt mikið en svo er kassinn víst 4 kg.
Það næsta á dagskrá er að finna hárgreiðslukonu sem getur eitthvað átt við þetta brjálaða hár sem ég er með. Ég er sko löngu búin að fá Völlu til að mála mig þannig að því er reddað.
Já og svo á ég náttlega eftir að klára boðskortin og senda þau en í dag verður stefnan tekin í bæinn að ganga frá gjafalistunum og jafnvel finna hringa. Púff nóg að gera sko.

Jæja best að fara að koma sér að verki og hætta þessu blaðri...í gær voru réttir 2 mánuðir í brúðkaupið.

5 Comments:

Blogger Helga said...

This comment has been removed by a blog administrator.

8:20 PM  
Blogger Helga said...

Þú ert ekki svoooo léleg, koma svo, þú ert svo hörð við sjálfa þig. Er það part of programmet?

Alltaf gaman að fylgjast með því sem þú ert að gera.

Bestu kveðjur

8:20 PM  
Anonymous Anonymous said...

gangi þér vel í öllu brullaupsstússinu ;)

8:33 PM  
Anonymous Anonymous said...

Ekkert svínerí,
ég ber nú títillinn að vera lélegasti bloggari á vefnum. Ekki reyna að koma nálegt mér.
Gangi ykkur vel í bruðkaupinu. Það er svo gaman að útrétta, skoða og svona. Finnst Gumma það ekki??

8:00 PM  
Blogger Sigga said...

Jújú Alex þú getur ýmindað þér...hann elskar þetta alveg...eða þannig sko!

2:42 AM  

Post a Comment

<< Home