Sigga bloggari

Kolvetnafíkillinn tjáir sig!

5.4.05

ÆMALIVE!

Nei ég er ekki enn á bautanum...fór reyndar ekkert á bautann. Ég stoppaði bara í 3 klukkutíma á Akureyri og þar af fór klukkutími í að skila barninu upp á spítala og gefa rapport og allt það.
Svo skellti ég mér bara í heimsókn til vinkonu minnar í smá stund áður en ég tók næstu vél heim.
Svo var ég bara að vinna alla helgina og í gærkvöldi líka. Nennti ekkert að blogga...algjör letingi.
Átakið gengur hægt þessa dagana enn vigtin fór samt niður um hálft kíló. Ég get nú ekki annað en verið sátt við það.
Við hjónaleysin fórum svo í dag að smakka veitingar fyrir brúðkaupsveisluna og förum svo á annan stað á morgun. Ég náttúrulega varð að smakka það...ekki hægt að velja þetta öðruvísi. Umm þetta var svaka gott. Ég á örugglega eftir að borða mest í veislunni.

Jæja ég er ekki alveg að nenna að setja hérna inn matseðla eða svolleiðis núna, vonandi kemur átaksandinn yfir mig aftur með tilheyrandi matseðlabloggi.

6 Comments:

Blogger Helga said...

Gott að það er allt í lagi með þig, mar var kominn með áhyggjur.

Hvernig er það er ekki allur veislumatur þannig að það á helst að borða lítið, NEMA í eigin brúðkaupi, kommon....

Ohh hvað það er örugglega gaman hjá ykkur að spá og spekulera, ákveða og plana... gaman gaman..

7:02 AM  
Anonymous Anonymous said...

Gott að vita að þú ert þarna ennþá :) Hlítur að vera gaman í þessu brúðkaupsstússi og til lukku með hálfa kílóið, það er snilld :)
Kv. Lotta

1:08 PM  
Anonymous Anonymous said...

Gott að sjá þig aftur , greinilega gaman hjá þér núna ... smakka veitingar *dreym* Gangi ´þér svaka vel :)

11:06 PM  
Blogger lalala said...

Mikið er gott að heyra frá þér og til hamingju með hálfa kílóið... það er nú bara fínn árangur! :) vonandi ferðu að komast í nennugírinn ;)

6:57 PM  
Blogger lalala said...

Mikið er gott að heyra frá þér og til hamingju með hálfa kílóið... það er nú bara fínn árangur! :) vonandi ferðu að komast í nennugírinn ;)

6:57 PM  
Blogger lalala said...

jæja hvernig gengur skvísa? :)

8:11 AM  

Post a Comment

<< Home