Hrikalegt sukk.
Ég hef nú bara aldrei upplifað þvílíkt sukk eins og þessa páska. Ég missti mig gjörsamlega í át og vitleysu alla dagana....jaa nema kannski í dag.
Allavegana veit ég ekki hvort ég þori á vigtina í fyrramálið. Það kemur bara í ljós á morgun.
Típískt ég að vera búin að ná þessum fína árangri og fara svo alveg með það .... doooohhh
Ég þoli mig ekki í dag.
Nú verður bara vatn og gras fram á sumar. Þýðir ekkert annað.
Skrifa kannski aftur á morgun.....ef ég þori!

2 Comments:
jújú blessuð vertu... þú ferð bara á vigtina á morgun og tekur afleiðingunum... það geri ég ;) Það þýðir ekkert að fara að gefast upp... rosalega ertu búin að vera löt við að blogga ;) það er meira að segja styttra síðan ég bloggaði en ég var þó í útlöndum :p
ég flaug líka á rassinn um páskana :Þ en hef trú á að ef við svissum aftur straxxx yfir í hollustuna fari páskahretið af okkur eins og það hafi aldrei komið :D Gangi þér vel og vertu dugleg svo vigtin fari niðurniðurniðurniður lala
Post a Comment
<< Home