Bara að láta vita af mér!
Það hrjáir mig leti, bloggleti, átaksleti og bara almenn leti.
Nenni gjörsamlega ekki að gera neitt þessa dagana. Skrítið maður skyldi ætla að með hækkandi sól myndi orkan aukast. Neinei ekki hjá mér.
Vigtin sagði það sama í morgun og hún sagði í síðustu viku...nákvæmlega það sama.
Ætli maður verði ekki bara að vera ánægður með það, miðað við aldur og fyrri störf.
Allavegana ég er semsagt enn á lífi....svona réttsvo.
Anyway...farin í heimsókn, nenni því náttlega ekki en ætla að drífa mig samt.

5 Comments:
hehehe þú verður að reyna að koma þér upp úr letinni :) Ég persónulega finn mikinn mun á mér orkulega þegar ég er að borða hollan mat... áður og þegar maður hefur tekið sér pásur finnur maður virkilega hvað holla mataræðið drífur mann áfram :) Vonandi skemmtir þú þér vel í heimsókninni :)
vakna Sigga vakna þú veltu þér úr fleti .... ljót er þessi leti lalala ;) gott að heyra frá þér ! nú ferðu að taka þetta með trompi hérna með okkur aftur ,, er þakki ??? kannast sko við þegar svona tímabil banka upp á ... bröltu nú á fætur ;)
Oh, eg væri sko anøgd ef helvitis vigtin hefdi stadid i stad hja mer, en hun hefur bara farid upp :S Tek a thessu eftir helgi ;) Thu ert dugleg.
Gott að þú látir vita af þér. Nú er bara að koma sér af stað. Gó sigga gó.... Ég hlakka til að sjá þig í vikunni.
Jæja Sigga :) Nú er komið nóg af átaksleti hehehe. Taktu nú á honum stóra þínum og komdu þér af stað :) erfitt í tvo daga og svo fer þetta að rúlla ;) Segi ég.... alltaf svo þægilegt að segja þetta hehe. Allavega gangi þér vel. Kv frá einni sem er loks búin að sparka í rassinn á sjálfri sér um að komast ur sófanum. EMS
Post a Comment
<< Home