Nú þýðir ekkert helvítis væl!
Ég held að andinn sé alveg að fara að koma yfir mig.
Ég dreif mig allavegna í það að þrífa og taka til i morgun og hrista svoldið á mér afturendann í leiðinni. Það er svaka gaman að dansa við moppuna:)
Svo verður bara tekið á því....erhaggi!
Var að tala við Völlu netvinkonu mína um daginn og við erum að spá í að skella okkur í sund á morgun. Svo fór ég reyndar aðeins út með stafina á sunnudagskvöldið og sveiflaði þeim soldið. Náði allavegana að svitna smá. Gerði svo handleggjaæfingar með fullar kókflöskur þegar ég kom heim. Er nefnilega að fá smá tremma yfir handleggjunum á mér. Brúðarkjóllinn minn er víst ermalaus....áts!
Matarræðið er allt að koma. Ég er sátt við gærdaginn og það hefur nú ekkert farið inn fyirir varir mínar í dag nema Cherrios.
En ég verð nú að segja ykkur eitt. Það er ekkert verið að auðvelda manni lífið. Ég fór í Bónus áðan sem er svosem ekkert merkilegt. Þar var verið að gefa kassa af hrísbitum eða einhverju svolleiðis....auglýsing fyrir OgVodafón....ég meina hvernig getur maður staðist ókeypis nammi? Ekki ég allavegana. Ég tók einn kassa og ætla svo bara að fara með hann í vinnuna á eftir, þar eru mjóar stelpur sem veitir ekki af að fita aðeins.
Anyway farin að vinna, hleyp örugglega undan mér lappirnar þar í kvöld eins og í gær!

3 Comments:
já er þetta ekki bara allt að koma hjá þér :D skil þig vel með ókeypis nammið hehehehe maður fer ekki að fúlsa við ókeypis kalorium sko . Gangi þér vel ..
Flott hjá þér... ég er líka að gera handaræfingar á meðan ég hjóla ;) Mér finnst flott hjá þér að fara bara með nammið í vinnuna :D
Komaaahhh svooo. Takk fyrir gærdaginn elsku Sigga, það var frábært að vera með þér allann daginn. Bið að heilsa.
Post a Comment
<< Home