Öfugsnúin í meira lagi.
Nú er mið nótt...og ég er glaðvakandi. Ástæðan er einföld. Ég er búin að vera á 5 næturvöktum síðustu viku og er orðin þokkalega öfugsnúin.
Ég meira að segja svaf til kl 19:30 í dag og trúði sko ekki mínum egin augum þegar ég vaknaði og leit á klukkuna. Eins gott að ég var ekki að fara aftur á næturvakt....ég hefði sofið yfir mig.
Allavegana ákvað ég að bregða mér á vigtina eftir allan þennan svefn og hvað haldið þið...jú 100 grömmum undir því minnsta sem ég hef verið síðan mælingar hófust. Eða 1.4 kg minna en á þriðjudaginn. Ég vissi alveg að sú tala var líka doldið út í hött.
Þannig að ég var svo ægilega ánægð með mig að ég ákvað að verðlauna mig með hamborgara frá Burger King. Kannski ekki alveg skynsamlegt enn ég var bara myglaðari enn allt sem myglað er og kallinn bara stunginn af á vinnudjamm og því ekki á staðnum til að elda handa mér.
Það er soldið fyndið með þessar næturvaktir, ég á ekkert erfitt með að vinna þær og gengur bara mjög vel að sofa á daginn. En ég reyni samt að taka eins lítið af þeim og ég kemst upp með vegna þess að ég er alveg í viku að jafna mig og komast aftur á rétt ról með sólarhringinn. Ég held að það sé afþví ég er í rauninni næturdýr og það hentar mér betur að sofa á daginn.
Jæja nóg bull um þetta í bili. Við hjónaleysin erum að fara á Selfoss á morgun að heimsækja vinafólk okkar og svo er bara mega prógramm alla næstu viku.
Ég sé bara fram á að verða ekkert heima á kvöldin fyrr enn bara næsta laugardag. Svona er þetta skondið það bara hleðst allt hjá manni á sömu vikuna. Leshópur, Fræðsludagur, Heimsóknir og Partý...ómægot. Þannig að það verður sko ekkert bloggað á næstunni.
Eins gott að kallinn er álíka bissí annars yrði hann nú ekki glaður.
Jæja skriðin uppí....sjáum hvernig gengur.

3 Comments:
flott að þér gengur vel að léttast... en hvernig er mataræðið þá á næturvöktunum? já auðvitað finnst manni að þú eigir ekki að verðlauna þig með mat ;)
Humm ég held ég borði kannski frekar lítið svona á næturvöktunum. Yfirleitt kvöldmat áður en ég fer, samloku kl 03 Cherrios kl 09 áður en ég fer að sofa.
Hef sloppið nokkuð vel frá freistingum á nóttini upp á síðkastið.
Ég er sko svona næturdýr líka og er einmitt lengi að snúa sólarhringnum við eftir þær, nema ég sé neydd til þess með því að þurfa að mæta í vinnu á dagvakt eða eitthvað álíka ;) En ég vil hins vegar helst taka næturvaktir ef einvherjar aukavaktir eru í boði, finnst þær langþægilegastar einhvernvegin.
Post a Comment
<< Home